Það er ótrúlegt til þess að hugsa að enn hafi náttúran ekki verið verðmetin við virkjanir og stóriðju. Það má túlka sem svo að yfirvöld meti ósnortna náttúru til einskis virði. Ég hef mikið velt því fyrir mér hver eigi íslenska náttúru, hvort það séu landeigendur, yfirvöld eða fólkið í landinu. Út frá því þróaðist sú hugmynd að vinna með það ómetanlega. Í hugum margra eru meistaraverk íslenska landslagsmálverksins ómetanlegar.
Hvað ef við færum eins með þessi málverk og ósnortna náttúru Íslands? Við færum inn á listasöfn og mokuðum burt fjöllin af verkum Kjarvals, stífluðum ár á verkum Jóns Stefánssonar, byggðum vegi yfir heiðarlandslag Georgs Guðna og dræpum gróðurbreiður Eggerts Péturssonar með brennisteinsvetni frá jarðvarmavirkjunum?
Ég uppfærði nokkrar myndir af verkum þekktra landslagsmálara með þetta í huga.
|
|