
Hugmyndin að „Undir meðvitund“ myndaröðinni er að búa til óhlutbundin myndverk innblásin af einu orði sem er efst á þeirri síðu sem teiknað er á í orðabók (enska eða íslenska), gera þannig orðið að mynd. Aðferðin sem notast er við er byggð á kenningum súrrealistanna um að ná í myndheim, djúpt í undirmeðvitundina. Það er gert með því undirbúa sig andlega undir hvert verk: fyrst þarf að hreinsa hugann, velja blaðsíðu af handahófi og byrja strax að teikna án þess að hugsa sig um eða velta fyrir sér hvað teikna skal. Þannig á að vera hægt að setja niður á blað það fyrsta sem kemur upp í hugann án þess að láta hugsun eða rök koma að máli.
Þannig verður penninn bein framlenging á hugmyndafluginu.
Myndin þróast svo áfram með því að treysta á tilfinninguna eina en ekki hugsanir eða rök, reglur, hefðir eða takmarkanir meðvitundarinnar.

Upphafleg hugmynd þessa verkefnis varð til í Englandi þegar ég var þar í námi. Keypti þar enska vasaorðabók í Oxfam búðinni í Maidstone. Hún kostaði 1.99 £ og notaði ég hana til að hafa við höndina í náminu. Eftir að því lauk og ég flutti aftur til Íslands var því ekki lengur hagnýt not fyrir hana. Það hafði lengi blundað í mér að vinna með orð og myndbirtingu þeirra og var þá kjörið að nota þessa bók í það og gefa henni þannig nýtt líf. Verkin úr þessari bók eru í „Undir meðvitund I“ myndraröðinni en í „Undir meðvitund II“ notaðist ég við íslenska orðabók sem ég fékk í fermingargjöf. | | | | | | |
|