Framandleiki

„Ostranenie“ er rússneska og merkir að gera e-ð ókunnugt (e. defamiliarizing, making strange) og kom fyrst fram í ritgerð Rússans Viktors Schlovsky, „Art as Procedure“ árið 1917. Hugtakið gengur í stuttu máli út á það að sjá hlutina í nýju ljósi, að taka eftir landslaginu sem líður daglega hjá án þess að við veitum því eftirtekt þar sem skynfærin eru orðin ónæm fyrir hversdagslegu umhverfi okkar.

Íslenska þýðingin á Ostranenie er „framandleiki“. Í myndröðinni er reynt að gera hið kunnuglega ókunnugt með því að gera áhorfandanum erfitt um vik að sjá tengingu myndefnisins við upprunann – að þröngva meðvitund áhorfandans til að sjá hlutina í nýju ljósi. Verkin eru nokkurskonar nútímalandslagsmyndir sem skoða tilbúna landslagið sem hefur tekið við fjalla- og sjávarsýn borgarbúa.

Hljóð og tónlist eru annað meginþema verkanna. Það snýst um að kanna hvort og þá hvernig hægt er að myndgera hljóð og tónlist. Þar sem hreyfing er forsenda hljóðs er notast við kyrrmyndir úr myndbandsbrotum úr hversdagslífinu. Annars vegar myndskeið sem tekin eru á ferð og hins vegar af viðfangsefnum sem hreyfast. Skjámyndunum er síðan raðað saman eftir reglum naumhyggjunar þar sem einfaldleiki, endurtekningar, taktur og hljómræn heild eru markmið mynd-sköpunarinnar.myndsköpunarinnar.


http://en.wikipedia.org/wiki/Ostranenie

http://en.wikipedia.org/wiki/Viktor_Shklovsky